apríl 2008
Þessi síða varð til upp úr rannsókn á möguleikum og framtíðarsýn RFID-flögunnar. Við rannsóknina tók ég fljótlega eftir að mjög sterkur vilji var fyrir því að þessi tækni nái fram að ganga jafnvel þótt að það geti þýtt skerðingu á persónufrelsi, skerðingu á mannréttindum og skerðingu á sjálfákvörðunarrétti manneskjunnar eins og stjórnarskrár velflestra landa kveða á um. Beggja vegna Atlantshafsins hefur þessi umræða orðið pólitískt þrætuepli, klofið og skipt fylkingum ekki síst vegna þessa möguleika að fylgjast með mannfólki en ekki bara vörum eins og lagt var stað upp með.
Í skynsömu orðatiltæki segir: „Ef eitthvað lítur út fyrir að vera gæs, kjagar eins og gæs og hegðar sér eins gæs – þá er það líklega gæs.“
Eitthvað álíka fer í gegnum huga minn varðandi þróun nýjustu RFID tækninnar. Hún lítur út fyrir að vera eftirlitstækni, virkar eins og eftirlitstækni og er eingöngu notuð til eftirlits. Hvaða hlutverk er henni ætlað að uppfylla á næstunni, ígrædd eða sett á líkama okkar?
Ég hef forðast að setja efni hérna fram sem ekki er rannsakað og fengnar heimildir fyrir og ef um slíkt efni er að ræða, látið þess sérstaklega getið. Verið ófeimin við að skrifa athugasemdir, þær eru allar velþegnar. Eins er hægt að hafa samband við mig á póstfangið berg44@simnet.is
Ragnar G.
Góð umfjöllun. Þetta kemur fyrst á vörur og það er búið að setja upp þannig verslanir í USA. Svo kemur þetta á gæludýr, en mikil mótstaða ennþá gegn því að setja þetta á fólk – nema hugsanlega á afbrotamenn – eru ekki 2 millj. í fangelsum í USA?
Takk, þetta er komið á vörur, æ fleiri lönd eru búin að skyldumerkja hús- og heimilisdýr (t.d. frá 1.1.´2008 í Sviss) og mótstaðan fer minnkandi með aukinni umræðu um hvernig hefði nú verið hægt að koma í veg fyrir hina og þessa hörmungina með rekjanlegri flögu. Hvað viljum við?