• Forsíða
  • Um síðuna
  • RFID?
  • Til hvers RFID?
  • Þróun
  • Biblían
  • Krækjur

Hvað er RFID?

Upplýsingsvæði um RFID (Radio Frequency Idendification)

Feeds:
Færslur
Ummæli

Biblían

Opinberun Jóhannesar fjallar um það sem margir kristnir telja vera þá framtíðarsýn sem tengist RFID. Í 13. kafla hefur verið rætt um dýr sem rís upp af hafinu sem þiggur mátt, hásæti og vald mikið frá drekanum (Satan). Og öll jörðin fylgir dýrinu með undrun og tilbiður drekann af því að hann hafði gefið dýrinu vald sitt. Síðan stígur annað dýr upp af jörðinni sem hefur tvö horn lík lambshornum en talar eins og dreki.

12. Það fer með allt vald fyrra dýrsins fyrir augsýn þess og það lætur jörðina og þá, sem á henni búa, tilbiðja fyrra dýrið, sem varð heilt af banasári sínu.

13. Og það gjörir tákn mikil, svo að það lætur jafnvel eld falla af himni ofan á jörðina fyrir augum mannanna.

14. Og það leiðir afvega þá, sem á jörðunni búa, með táknunum, sem því er lofað að gjöra í augsýn dýrsins. Það segir þeim, sem á jörðunni búa, að þeir skuli gjöra líkneski af dýrinu, sem sárið fékk undan sverðinu, en lifnaði við.

15. Og því var leyft að gefa líkneski dýrsins anda, til þess að líkneski dýrsins gæti einnig talað og komið því til leiðar, að allir yrðu þeir deyddir, sem ekki vildu tilbiðja líkneski dýrsins.

16. Og það lætur alla, smáa og stóra, auðuga og fátæka og frjálsa og ófrjálsa, setja merki á hægri hönd sér eða á enni sín

17. og kemur því til leiðar, að enginn geti keypt eða selt, nema hann hafi merkið, nafn dýrsins, eða tölu nafns þess.

18. Hér reynir á speki. Sá sem skilning hefur reikni tölu dýrsins, því að tala manns er það, og tala hans er sex hundruð sextíu og sex.

Hér er fjallað um endatíma, lok jarðar, Harmageddon þar sem það er mikilvægt fyrir hvern einstakling að forðast þátttöku í verki óvinarins. Hinna bíður slæm vist sem falla og tilbiðja dýrið (Opb 14.9-12):

9. Á eftir þeim kom hinn þriðji engill og sagði hárri röddu: ,,Ef einhver tilbiður dýrið og líkneski þess og fær merki á enni sitt eða hönd sína,

10. þá skal sá hinn sami drekka af reiði-víni Guðs, sem byrlað er óblandað í reiðibikar hans, og hann mun kvalinn verða í eldi og brennisteini í augsýn heilagra engla og í augsýn lambsins.

11. Og reykurinn frá kvalastað þeirra stígur upp um aldir alda, og eigi hafa þeir hvíld dag eða nótt, þeir sem dýrið tilbiðja og líkneski þess, hver sá sem ber merki nafns þess.“

12. Hér reynir á þolgæði hinna heilögu, þeirra er varðveita boð Guðs og trúna á Jesú.

Og að lokum uppskera hinir þolgóðu sem héldu trú sinni (Opb 15.2-3):

2. Og ég leit sem glerhaf eldi blandið, og ég sá þá, sem unnið höfðu sigur á dýrinu og líkneski þess og á tölu nafns þess, standa við glerhafið og halda á hörpum Guðs.

3. Og þeir syngja söng Móse, Guðs þjóns, og söng lambsins …

Biblíutilvitnanir fengnar frá Biblíu Háskóla Íslands (þýðingu 1981).

http://www.hi.is/Uppl/Biblia/

Comments Off

  • tölfræðin

    • 404 heimsóknir
  • Efni

    • Um síðuna
    • RFID?
    • Til hvers RFID?
    • Þróun
    • Biblían
    • Krækjur

Bloggaðu hjá WordPress.com.

Theme: Mistylook by Sadish.