Á hvaða leið er RFID?
Leiðin til algers eftirlitseinræðis
Í nóv. 2007 undirritaði fylkisstjórinn í Kaliforníu lög þess efnis að óheimilt væri að ígræða RFID flögu í hold eða húð einstaklinga gegn vilja þeirra. Ástæða þess var aukinn áhugi framleiðenda RFID á að taka af skarið og merkja fólk „svona í leiðinni“ á sjúkrahúsum og öðrum stöðum þar sem hægt væri – án þeirra vitneskju. Fyrirtækið VeriChip hafði til nokkurs tíma upplýsingar um þetta á heimasíðu sinni
Að framleiða hina hrísgrjónsstóru Veri-flögu var engin list. Ekkert frekar en hin sexmilljarðfalda framleiðsla svo nægi til innsetningar í allt mannkynið. Hið sanna listaverk verður hinsvegar útsmogin herferðin sem telur öllu mannkyni trú um það sem mun virðast óhjákvæmilegu nauðsyn þessarar RFID-flögu – uns allir eru að lokum reiðubúnir að taka á móti henni.
Vegna þess að RFID gerir sjálfvirka svörun mögulega munu gámar og kassar sem ætlaðir eru til flutnings í síauknum mæli verða útbúnir flögunni. Hagkvæmnin verður sérlega auðsæ þegar um er að ræða flutning hættulegra hluta og við óvenjulegar aðstæður: skráningin upplýsinganna getur átt sér stað hratt og án misritunar við allt að 200ºC og úr margra metra fjarlægð. RFID þjónar þar að auki sem þjófavörn í öryggis- og hagkvæmnimálum fyrir allskyns flutninga.
Áleitin spurning: breytir notkun flögunnar virkilega þjófseðli póstræningjans eða breytast í besta falli aðferðirnar?
RFID á elliheimili og sjúkrahús
Tryggingakort með örflögu er í mörgum löndum í aðsiglingu. Í austurrískum elliheimilum er þegar hægt að vakta sjúklinga með RFID. Eins hafa sjúklingar við Jacobi Medical Center í New York borið sjúkrasöguna á RFID-armbandi síðan 2004. Á 140 spítölum í USA hefur sjúklingum verið afhent þessi örflaga: öryggisins vegna (í tilfellum ringlunar, meðvitundarleysis, slysa o.s.fr.) er hrískornsstórum RFID-um meira að segja sprautað undir húðina. Á þann máta er hjálpræði sjúklingsins „í honum sjálfum“. Í tilfellum slíkra slysa er hægt að kalla fram lyfjagjöf umsvifalaust og auðkenna látna eða slasaða (t.d. hermenn).
Áleitnar spurningar: Hver tryggir það eiginlega að slíkar flögur lendi alltaf í réttum einstaklingum? Hvað varðar það undirmannað starfsfólk elliheimilis þegar einn sjúklingur fellur sem var hvort eð er á dauðadeildinni? Væri ekki miklu brýnna að bæta hina mannlegu umönnun í stað eftirlits með flögu?
RFID fyrir dýr
Ígrædd RFID hundamerki eru skylda í Sviss síðan 1. jan 2007. Með þessu móti, aftur í nafni öryggis, á að merkja hættulega og truflandi hunda og gera þá þannig hættulausa. RFID stendur landbúnaðnum líka til boða: með merkingu á svínum er hægt, öryggisins vegna, að fylgjast algerlega með hverju dýri og því séð fyrir kórréttri umönnun og næringu. Einnig bjóðast möguleikar á merkingu villtra dýra, hérlendis væri hægt að fylgjast með hreindýrum eða jafnvel sauðkindinni á heiðum uppi. Dýr í útrýmingarhættu skulu líka merkt svo hægt sé að bjarga þeim frá útrýmingu.
Gagnrýnar spurningar: Bíta merktir hundar minna eða strjúka þeir sjaldnar en þeir sem eru merktir með venjulegum hundamerkingum? Og verða aðstæður hinnar ZZZ sjálfkrafa betri vegna flögunnar?
RFID vegna aukinna þæginda
Flestir háskólar í Hessen hafa sett tölvflögu í stúdentaskírteinin. Frá því í desember 2006 geta eigendur þessa nýja skýrteinis keypt reiðfélaust í mötuneyti skólanna og bókasafnsbækur er útbúnar RFID. Á flugvöllum er fá ferðatöskur RFID á handfangið og eru þegar á vegabréfum og aðgöngumiðum. Ef hjólinu er stolið er vandamálalaust að finna það aftur nema að þjófurinn hafi fjarlægt flöguna. Þvottavél með RFID- lesara velur sjálfvirkt prógramm sem hentar belst fyrir þvottinn sem líka merktur flögu eða þá ruslkostnaðurinn/reikningurinn fyrir ruslið (Mullkostenabrechnung) mun reiknast sjálfkrafa og stýrast af greindar ruslatunnu (intelligenten Mülltonne). Öryggi á líka að veitast gagnvart matareitrun og kúarriðu (Rinderwahn): Með RFID á að vera hægt að rekja hvaðan sjúkdómurinn kemur. Og litla loftnetsstrikamerkið heldur áfram sinni sigurgöngu (sezen ihren Siegezug fort). Bráðum á sérhver hversdagshlutur, sérhvert dýr og að lokum manneskjan að vera flöguð, ef allt gengur samkvæmt áætlun.
Spurningar til gagnrýni:
Hvað ef að einhver stelur tösku og forritar flögu töskunnar á sitt nafn ?(was wäre, wenn jemand einen Koffer stiehlt und dessen Chip auf Ihren Namen programmiert?) Er þá ekki mögulegt að rétti eignandinn standi uppi sem sá brotlegi? Mun ekki slunginn reiðhjólaþjófur gera það að sínu fyrsta verki að fjarlægja flöguna af hjólinu? Öryggi geng kúarriðu (rinderwahn) – Getur þetta margumtalaða öryggi tryggt mig eftir á þegar hef eitraðan bitann í maganum?